Home Fréttir Í fréttum 12.03.2024 Laugasól – endurgerð húss og lóðar

12.03.2024 Laugasól – endurgerð húss og lóðar

156
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Laugasól – endurgerð húss og lóðar, útboð nr. 15964

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í endurbótum og fullnaðarfrágangi á leikskólanum Laugasól að Leirulæk 6 í Reykjavík. Byggingin var byggð árið 1965 og er hér um endurbætur og breytingar húsnæðisins að ræða, ásamt lóðaframkvæmdum á hluta lóðar. Byggingin er á tveimur hæðum og heildarstærð húsnæðis um 1.160 m2.

Helstu verkþættir eru:

  • Gagngerar endurbætur og breytingar á niðurgröfnum kjallara í jarðhæð sunnan megin lóðar.
  • Breytingar og endurbætur efri hæðar.
  • Endurnýjun raf-, loftræsti- og lagnakerfa í öllu húsnæðinu.
  • Lóðaframkvæmdir og fullnaðarfrágangur lóðar í tengslum við breytingar.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 14:00 þann 13. febrúar 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 12. mars 2024.