Tilboð opnuð 22. mars 2016. Endurmótun 15,8 km Kaldadalsvegar frá núverandi klæðningarenda að vegamótum Uxahryggjavegar, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
- Ræsi 86 m
- Neðra burðarlag 12.545 m3
- Efra burðarlag 14.920 m3
- Tvöföld klæðing 102.740 m2
- Grjótvörn 1.185 m3
- Frágangur fláa 41.475 m2
Verkinu skal að lokið með tvöfaldri klæðingu eigi síðar en 1. september 2016 og að fullu 1. október 2016.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Mjölnir, vörubifreiðastjórafélag, Selfossi | 158.633.650 | 105,6 | 17.738 |
Áætlaður verktakakostnaður | 150.200.000 | 100,0 | 9.304 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 147.417.000 | 98,1 | 6.521 |
Suðurtak ehf., Brjánsstöðum | 140.895.720 | 93,8 | 0 |