Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Hringvegur (1), veðurstöð í Eldhrauni – Litli-Brestur

Opnun útboðs: Hringvegur (1), veðurstöð í Eldhrauni – Litli-Brestur

282
0

Opnun tilboða 6. febrúar 2024.
Styrking og endurmótun á 4,9 km kafla Hringvegarins (1-a6), frá veðurstöð í Eldhrauni í austri að Litla-Bresti í vestri.

<>

Um er að ræða endurmótun á 4,9 km vegarkafla Hringvegarins, milli veðurstöðvar í Eldhrauni í austri og Litla-Brests í vestri í Skaftárhreppi.

Fræsa skal núverandi klæðingu saman við burðarlag, breikka, bæta við burðarlagi og að lokum leggja klæðingu yfir. Vinna skal efni í styrktarlag og burðarlag úr bergnámu á svæðinu. Verktaki skal tvískipta verkinu þannig að einungis helmingur vegarins sé í framkvæmd í einu.

Helstu magntölur eru:

  • – Bergskering í námu 14.000 m3
  • – Skeringar 2.550 m3
  • – Fláafleygar 4.700 m3
  • – Styrktarlag 2.800 m3
  • – Burðarlag 0/22 9.500 m3
  • – Tvöföld klæðing 42.000 m2
  • – Gróffræsun 38.000 m2
  • – Frágangur fláa og vegsvæðis 37.000 m2

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2024.