Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Akraneskaupstaður: Skrifað undir verksamning vegna Brekkubæjarskóla

Akraneskaupstaður: Skrifað undir verksamning vegna Brekkubæjarskóla

211
0
Frá vinstri: Alfreð Þór Alfreðsson, Arnbjörg Stefánsdóttir, Ragnar B. Sæmundsson, Haraldur Benediktsson, Fannar Magnússon, Sturla Magnússon, Sigurður Páll Harðarson, Einar Brandsson, Anna Sólveig Smáradóttir, Anna María Þráinsdóttir

Í vikunni undirrituðu Akraneskaupstaður og SF smiðir verksamning um fyrirhugaðar framkvæmdir í Brekkubæjarskóla sem hefjast þann 10. janúar 2024.

<>

Um er að ræða endurgerð 1. hæðar í Brekkubæjarskóla um 2.100 fm auk kjallararýmis og nokkurra rýma á 2 og 3 hæð. Verkið skiptist í tvo áfanga:

Fyrri áfanga skal lokið 31.12.24 

Í fyrri áfanga verður kennslueldhús endurnýjað ásamt lyftu sem verður stækkuð. Nýtt anddyri verður byggt og innréttuð verða rými fyrir sérkennslustofur, sálfræðing, námsráðgjafa, hjúkrun og tónmennt.

Seinni áfanga skal lokið 31.12.25

Í síðari áfanga verður samkomusalur endurnýjaður og útbúið rými fyrir lyftu. Þar sem áður voru tónlistarstofa, námsráðgjafar og sálfræðingar verður gerð smíðastofa, myndmennt og hannyrðir ásamt nýjum salernum.

Heimild: Akranes.is