Home Fréttir Í fréttum Skel keypti Baróns­fjósið á 450 milljónir

Skel keypti Baróns­fjósið á 450 milljónir

159
0
Barónsfjósið hýsti verslun 10-11 um árabil en í dag er verslun Extra rekin í húsinu. Ljósmynd: Aðsend mynd

Skel fjárfestingarfélag keypti verslunarhúsnæðið að Barónsstíg 2-4 af Reitum fasteignafélagi fyrir 450 milljónir króna á fyrri hluta síðasta árs og afhending fór fram 1. júlí 2023. Birt særð eignarinnar er 549,1 fermetri og fasteignamat fyrir árið 2024 er 177,2 milljónir króna.

<>

Húsnæðið hýsir í dag verslun Extra en þar áður var 10-11 með rekstur í húsinu um árabil. Báðar verslanir tilheyrðu áður Orkunni, dótturfélagi Skeljar. Heimkaup, sem Skel á tæplega 80% hlut í, tók við öllum verslunarrekstri Orkunnar síðasta sumar.

„Það var stutt eftir af leigusamningnum og það var hagfelldara fyrir okkur að kaupa húsnæðið en að leigja hana áfram,“ segir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar, segir í samtali við Viðskiptablaðið. Aðspurður segir hann að áfram verði verslunarrekstur í húsinu.

Verslunarhúsnæðið að Baróns­stíg­ 4 – friðuð bygging sem er oft kölluð Baróns­fjósið – er í aust­ur­enda lóðar­inn­ar á horni Hverf­is­götu og Baróns­stígs. Fasteigninni fylgir heimild til að rífa viðbyggingu frá 1925 nyrst við húsið og byggja nýbyggingu Barónsstígs 2 í staðinn.

Barónsfjósið var fyrsta steinsteypuhúsið í borginni en þegar það var reist var því ætlað að hýsa 50 kýr. Franskur barón, Charles Gouldrée Boillea, lét byggja fjósið árið 1899 og tekur Barónsstígur nafn sitt af honum. Fjósið hýsti lengi áhöld í eigu Rafmagnsveitu Reykjavíkur en þar hefur nú til margra ára verið rekin matvöruverslun.

Fréttin birtist í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið.

Heimild: Vb.is