Alls voru 37 starfsmenn á launaskrá hjá félaginu í árslok 2021.
Gjaldþrotaskiptum starfsmannaleigunnar Gott fólk ehf. lauk í síðustu viku án þess að greiðsla fékkst upp í lýstar kröfur í búið sem námu 255 milljónum króna.
Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað með úrskurði í fyrra að bú félagsins yrði tekið til gjaldþrotaskipta.
Tekjur yfir 200 milljónir og 37 starfsmenn
Samkvæmt ársreikningi átti Georg Georgiou allt hlutafé félagsins í lok árs 2021 og námu tekjur 225 milljónum króna.
Ársverk voru 37 árið 2021 en félagið skilaði 41 milljón króna tapi sama ár. Í ársreikningi segir að í árslok 2021 voru 37 starfsmenn á launaskrá hjá félaginu.
Heimild: Vb.is