Home Í fréttum Niðurstöður útboða Fimm tilboð bárust í viðamiklar endurbætur í Brekkubæjarskóla

Fimm tilboð bárust í viðamiklar endurbætur í Brekkubæjarskóla

483
0
Mynd: Skagafrettir..is

Miklar endurbætur verða gerðar á 1. hæð í Brekkubæjarskóla á næstu misserum.

<>

Akraneskaupstaðar óskaði nýverið eftir tilboðum í verkefnið – en gert var ráð fyrir um 813 milljónum kr. í kostnaðaráætlun.

Alls bárust fimm tilboð í verkefnið.

SF Smiðir ehf. á Akranesi bauð lægst eða rétt tæplega 720 milljónir kr. sem er rúmlega 11% undir kostnaðaráætlun. Skipulags – og umhverfisráð Akraness hefur falið umhverfisstjóra að ganga til samning við fyrirtækið.

Þrjú tilboð voru undir kostnaðaráætlun en hæsta tilboðið var rúmlega 20% yfir kostnaðaráætlun.

Eftirtalin fyrirtæki sendu inn tilboð:

SF Smiðir ehf – 719.696.768,-

K16 ehf – kr.792.396.573,-

Sjammi ehf – kr. 807.962.299,-

Land og verk – kr. 825.109.440,-

Ístak – kr. 984.683.420,-

Heimild: Skagafrettir..is