Landsnet óskar eftir umsóknum um þátttöku í samningskaupaferli vegna jarðvinnu og lagningar.
Verkið felst í lagningu 36 km langs, 132 kV jarðstrengs, Rimakotslínu 2 (RI2), frá tengivirki við Hellu að tengivirki í Rimakoti.
Framkvæmdinni er skipt í tvö verk, LOT1 og LOT2. LOT1 felst í lagningu strengs milli Hellu og tengiholu 11 við Miðkrika sunnan Hvolsvallar, um 16 km leið.
LOT2 felst í lagningu strengs milli tengiholu 11 og tengivirkis í Rimakoti um 20 km leið. Geta bjóðendur hvort eð heldur boðið í LOT1, LOT2 eða heildarverkið, LOT3.
Framkvæmdatími er frá apríl 2024 (eða um leið og veður leyfir) út nóvember 2024, auk lokafrágangs í desember 2024.
Um er að ræða samningskaup að undangengnu forvali í samræmi við 50. gr. reglugerðar 340/2017.
Útboðsgögn afhent: | 21.12.2023 kl. 15:11 |
Skilafrestur | 10.01.2024 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 30.01.2024 kl. 14:00 |
Frekari upplýsingar má finna á útboðsvef Landsnets.