Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboði í verkið: Nýr Landspítali við Hringbraut. Vinnubúðir – Gámaeiningar.
Verktaki skal útvega 14 gámaeiningar, reisa og ganga frá að fullu samkvæmt grunnmyndum og útliti á byggingaruppdráttum.
Um er að ræða um 210m² skrifstofu- og fundarými. Í rýminu verði anddyri, ræsting, salerni, eldhúskrókur, fatahengi, 2 fundarherbergi, afdrep og skrifstofurými fyrir 25-30 starfsmenn.
Útboðsgögn afhent: | 07.12.2023 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 29.12.2023 kl. 13:00 |
Opnun tilboða: | 29.12.2023 kl. 13:15 |