Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir hefjast senn við félagsaðstöðu og stúku á KA-svæði

Framkvæmdir hefjast senn við félagsaðstöðu og stúku á KA-svæði

97
0
Tölvuteikningar frá Kollgátu arkitektúr.

Miklar framkvæmdir eru á döfinni á íþróttasvæði KA. Byrjað var á nýjum keppnisvelli á síðasta ári og nú stendur til að ráðast í byggingu stúku og félagsaðstöðu.

<>
Nýframkvæmdir á KA-svæði.

Á þessu ári hefur verið unnið að jarðvinnu og lögnum á keppnisvelli, uppsetningu ljósamastra fyrir flóðlýsingu auk jarðvegsskipta fyrir fyrirhugaða félagsaðstöðu og stúku.

Nýframkvæmdir á KA-svæði.

Ekki tókst að ljúka lagningu gervigrassins síðasta sumar og því var ákveðið að fresta því til næsta vors 2024. Þessa dagana er verið að koma fyrir undirstöðum fyrir girðingu umhverfis íþróttasvæðið, meðfram stígum frá Lundaskóla, Hrísalundi og Þingvallastræti.

Nýframkvæmdir á KA-svæði.

Vinnu við hönnun á félagsaðstöðu og stúku er að ljúka og reiknað er með því að framkvæmdir við þær verði boðnar út í byrjun febrúar á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að þeim ljúki innan fjögurra næstu ára.

Nýframkvæmdir á KA-svæði.

Fleiri myndir má finna á vef Akureyrarbæjar.

Heimild: Akureyri.is