Home Fréttir Í fréttum Tvö ný smáhýsi í Dverholti á Akureyri afhent

Tvö ný smáhýsi í Dverholti á Akureyri afhent

95
0
Mynd: Akureyri.is

Tvö ný smáhýsi fyrir fólk með fjölþættan vanda voru afhent sveitarfélaginu fimmtudaginn 30. nóvember. Fyrir voru tvö smáhýsi á lóðinni við Dvergholt 2 en þau hafa verið í notkun síðan 2020.

<>

Húsin eru byggð af SS Byggi eins og fyrri húsin tvö og stóð til að afhenda þau í lok febrúar 2024 en verkinu var lokið fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir og því voru þau afhent núna, þremur mánuðum á undan áætlun.

Smáhýsin tvö eru vönduð tveggja herbergja hús, 55 m² að stærð, byggð úr krosslímdum timbureiningum og klædd að utan með álklæðningum. Við öll húsin er steypt verönd.

Heimild: Akureyri.is