Home Fréttir Í fréttum 06.12.2023 Brekkubæjarskóli 1. hæð – Endurgerð 2023

06.12.2023 Brekkubæjarskóli 1. hæð – Endurgerð 2023

242
0
Brekkubæjarskóli

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í endurgerð að innan á 1. hæð í Brekkubæjarskóla, Vesturgötu 120, Akranesi.

<>

Um er að ræða endurgerð 1. hæðar í Brekkubæjarskóla um 2.100 m2 auk kjallararýmis og nokkurra rýma á 2. og 3. hæð. Hluti af verkinu á 1. hæð er nýbygging (nýtt anddyri). Verkið felst í tilfærslu á ýmsum kennslu- og stoðrýmum innan hæðarinnar með tilheyrandi skipulagningu framkvæmdar innan áfanga og milli áfanga.

Áfanga 1, sem er um 1.100 m2, skal vera lokið fyrir 31.12.2024 og verður hann þá tekinn í notkun. Þá fær verktaki aðgang að áfanga 2, sem er um 1.000 m2, og skal honum lokið í verklok sem eru 31.12.2025.

Vettvangsskoðun er fimmtudaginn 23. nóvember 2023 kl. 11:00.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá þriðjudeginum 14. nóvember 2023 í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 6. desember 2023. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs