Home Fréttir Í fréttum 04.12.2023 Garðaborg. Endurgerð húsnæðis

04.12.2023 Garðaborg. Endurgerð húsnæðis

228
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Garðaborg. Endurgerð húsnæðis, útboð 15927

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í niðurrif innanhúss sem og á þakvirki, fullnaðarfrágangi að utan og innan ásamt hurða- og gluggaísetningu. Núverandi bygging er hefðbundið staðsteypt hús byggt árið 1982.

Steyptir burðarveggir byggingarinnar munu halda sér eins og það er í dag. Frágangur að innan felst í uppsetningu inniveggja, hurða, loftaklæðningar, innréttinga og loftræsingu ásamt öðrum húskerfum og raf- og neysluvatnslögnum.

Garðaborg leikskóli tók til starfa árið 1983 og er á Bústaðavegi 81 í hverfi Háaleiti og Bústaðar í Reykjavík.

Helstu verkþættir og magntölur eru:

Einangrun og klæðning útveggja 215 m2

Endurgerð þakvirkis 400 m2

Gluggar og hurðir 28 stk.

Innveggir 350 m2

Öll tækni- og lagnakerfi hússins s.s. loftræsikerfi, vatns-, raflagnir í 380 m2 húsnæði.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:30 þann 7. nóvember 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 4. desember 2023.