Úr fundargerð Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings þann 30.10.2023
Útboð Baugur Bjólfs.
Verkefnastjóri framkvæmdamála greinir frá stöðu vinnu eftir útboð framkvæmda við útsýnispallinn Baug Bjólfs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram a fundinum:
Umhverfis- og framkvæmdaráð hafnar öllum tilboðum sem bárust við útboð framkvæmdarinnar en felur framkvæmda- og umhverfismálastjóra og verkefnastjóra framkvæmda að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Málið verður tekið fyrir að nýju.
Samþykkt samhljóða.
Heimild: Mulathing.is