Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili ehf. óskar eftir tilboði í endurnýjun á þakklæðningu, veggklæðningu ásamt nýjum og endurbættum gluggum, endurnýjun þakkannta og vatnsvörn flatra þaka á heimilinu. Helstu magntölur: Þakklæðning 311 m², flöt þök 241 m², báruð álklæðning 242 m² og fjöldi nýrra glugga um 15 stk.
Ekki er um nýbyggingu að ræða. Starfsemi Höfða er viðkvæm og því verður vinna verktaka takmörkuð milli 7:30 og 17:00. Stefnt er að verktaki hafi um 4 mánuði til að afla að sér efni áður vinna hefst á verkstað.
Framkvæmdartíminn er frá 1. mars 2024 til 31. október 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá miðvikudeginum 18. október 2023 kl: 12:00 í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net
Tilboðum skal skilað í gegnum útboðsvefinn fyrir kl. 15:00, miðvikudeginum 15. nóvember 2023. Fundargerð um opnun tilboðanna verður send til allra tilboðsgjafa eftir opnun þeirra.
Framkvæmdarnefnd Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis.