CFVK-2023-02 Steingerður – Lagnir og búnaður
Verkkaupi óskar eftir tilboðum í verkið „Steingerður – Lagnir og búnaður“ í samræmi við útboðsgögn.
Verkið felur í sér uppsetningu á lögnum og búnaði fyrir Steingerði, nýja gasföngunarstöð á Hellisheiði.
Í stuttu máli felast framkvæmdir vegna þessa í eftirfarandi:
a. Uppsetningu á gasþjöppum, dælum, lokum og lögnum í nýju húsi Steingerðar á lóð Hellisheiðarvirkjunar.
b. Tengingu lagna við þvottaturn.
c. Niðurtekt eldri varmaskiptis, dælu og lagna í rafstöð Hellisheiðarvirkjunar.
d. Uppsetningu á nýjum varmaskipti, dælu, lokum og lögnum í rafstöð Hellisheiðarvirkjunar.
e. Uppsetningu lagna við kæliturna véla 2 og 3.
Nánari upplýsingar um verkið má finna í útboðsgögnum.
Útboðsgögn afhent: | 20.10.2023 kl. 14:00 |
Skilafrestur | 17.11.2023 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 17.11.2023 kl. 14:00 |