F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Suðurhlíð Bústaðavegur – Fossvogur. Göngu- og hjólastígur, útboð 15908
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felur í sér gerð göngu- og hjólastígs meðfram Kringlumýrarbraut, frá þverun stígs yfir afrein/rampa sem tengir Kringlumýrarbraut við Bústaðaveg að norðanverðu að fyrirhugaðri nýrri þverun stíga yfir rampa frá Kringlumýrarbraut að Suðurhlíð.
Innifalin er öll jarðvinna og yfirborðsfrágangur í verkinu, þar með talið gerð grjóthleðslu við hlið stíga eins og sýnt er á teikningum. Einnig gerð hljóðgirðingar úr tré meðfram Kringlumýrarbaut á móts við Suðurhlíð 35. Stíglýsing verður bætt með því að leggja ídráttarrör og jarðstrengi fyrir götulýsingu ásamt því að taka niður stólpa og reisa nýja ljósastólpa
Helstu magntölur eru:
- Upprif á malbiki 2.300 m2
- Upprif á hellum 500 m2
- Gröftur 3.900 m3
- Fyllingar 3.000 m3
- Grjóthleðsla 200 m
- Malbikun 3.800 m2
- Hellulögn 350 m2
- Hljóðgirðing úr timbri 100 m
- Þökulögn 1.600 m2
- Grassáning 1.500 m2
- Ljósastólpar 24 stk.
- Rafstrengir 800 m
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 25. september 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 2. nóvember 2023.