Home Fréttir Í fréttum Langþreytt á biðinni eftir nýju hjúkrunarheimili

Langþreytt á biðinni eftir nýju hjúkrunarheimili

57
0
Skjáskot af Ruv.is

Samkvæmt áætlun átti nýtt hjúkrunarheimili að rísa á Húsavík 2024, það verður þó ekki íbúðarhæft fyrr en 2027. Íbúar segjast þreyttir á töfunum.

<>

Framkvæmdir við hjúkrunarheimili á Húsavík, sem til stóð að yrði íbúðarhæft á næsta ári, eru um þremur árum á eftir áætlun. Eldri borgarar á Húsavík segjast orðnir langþreyttir á töfunum.

Undir lok árs 2021 var tekin fyrsta skóflustungan að nýju hjúkrunarheimili sem átti að bylta þjónustu við eldra fólk á Húsavík. Síðan eru liðin tvö ár og hér hefur lítið breyst.

Hjúkrunarheimilið hefur síðustu ár farið langt fram út kostnaðaráætlun, eða úr tveimur komma tveimur milljörðum í yfir fimm milljarða. Þá varð að endurmeta stöðuna og öll áform stöðvuð á meðan.

Sveitarfélögin sem standa að byggingunni; Norðurþing, Þingeyjarsveit og Tjörneshreppur, undirrituðu loks nýja samninga við ríkið í vor eftir talsvert langar viðræður um skiptingu kostnaðar og nú stendur til að bjóða verkið út.

Heimild: Ruv.is