Home Fréttir Í fréttum Skel kaupir allt að 90 íbúðir fyrir 8 milljarða

Skel kaupir allt að 90 íbúðir fyrir 8 milljarða

307
0
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar, segir fjárfestingarféalgið telja að gerjun sé framundan á fasteignamarkaði.

Skel fjárfestingarfélag kaupir 55 íbúðir við Stefnisvog 2 fyrir 4,9 milljarða og semur um kauprétt að 35 íbúðum við Stefnisvog 12 á 3,2 milljarða. Stefnt er að hefja leigustarfsemi.

<>

Skel fjárfestingarfélag undirritaði í dag kaupsamning um 55 íbúðir, samtals 5.905 fermetrar, við Stefnisvog 2 í Reykjavík fyrir 4,9 milljarða króna. Seljandi er Stefnisvogur 2 ehf. Gert er ráð fyrir því að íbúðirnar verði afhentar fyrir lok árs 2023.

Samhliða undirritun kaupsamnings var gert samkomulag um kauprétt Skeljar að 35 íbúðum, samtals 3.816 fermetrar, við Stefnisvog 12 í eigu Stefnisvogs ehf. Verð samkvæmt kauprétti er um 3.244 milljónir króna. Nýti Skel kaupréttinn er gert ráð fyrir því að íbúðirnar við Stefnisvog 12 verði afhentar fyrir árslok 2024.

„Skel stefnir að því að setja íbúðir í útleigu,“ að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Afhenda hluti í Reir þróun á móti
Sé gert ráð fyrir að Skel nýti kaupréttinn verður kaupverðið á hinum 90 íbúðum við Stefnisvog 2 og 12 samtals um 8,1 milljarður króna.

Byggingarfélagið Reir Verk hefur unnið að byggingu á þriðja hundrað íbúða á fjórum fjölbýlishúsalóðum í Vogabyggð.

Stefnisvogur 2 er fjölbýlishús í vogabyggð. Mynd tekin af heimasíðu framkvæmdaaðilans Reir Verks.

Fram kemur að hluti kaupverðs verði greiddur með afhendingu hlutafjár og hluthafalána í Reir þróun ehf. á bókfærðu verði. Bókfært virði hlutfjár og fjárhæð hluthafalána Skeljar í Reir þróun í lok júní síðastliðnum nam samtals 1.753 milljónum króna.

„Komi til nýtingar kaupréttar verður Skel búið að afhenda alla hluti félagsins í Reir þróun. Að öðru leyti verður kaupverðið fjármagnað með bankaláni og reiðufé,“ segir í tilkynningunni.

„Skel hefur reynslu og þekkingu á fasteignamarkaði, en 17% eigna félagsins eru í fasteignum eða félögum sem reka og þróa fasteignir. SKEL telur að gerjun sé framundan á fasteignamarkaði, m.a. vegna breytinga hjá stórum leigufélögum. Framboð hefur ekki svarað eftirspurn á undanförnum árum og eftirspurn vex ár frá ári. Íbúðirnar við Stefnisvog 2 verða settar í langtímaleigu,“ segir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar.

Skel er stærsti hluthafi fasteignafélagsins Kaldalóns með 15,4% hlut sem er um 2,6 milljarðar króna að markaðsvirði. Kaldalón, sem er skráð á First North-markaðinn, einblínir á tekjuberandi atvinnueignir í sínum rekstri.

Skel á fasteignir í Litlatúni 1 í Garðabæ og Austurströnd 7 á Seltjarnarnesi ásamt því að eiga helmingshlut í fasteignaþróunarfélaginu Helgafellsásar og í Öxl fasteignum sem sem á lóðir í Hveragerði.

Heimild: Vb.is