Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Vestursvæði á árinu 2016.
Helstu magntölur eru:
- – Yfirlagnir 429.800 m2
- – Flutningur steinefna 4.647 m3
- – Flutningur bindiefna 716 tonn
Verki skal að fullu lokið 1. september 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgarbraut 66 Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. mars 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag