Home Fréttir Í fréttum Þorskafjarðarbrú klárast hálfu ári á undan áætlun

Þorskafjarðarbrú klárast hálfu ári á undan áætlun

62
0
Einar Valur Valgarðsson, verkstjóri Suðurverks, í Þorskafirði í gær. Verið var að leggja bundið slitlag á tengivegi að austanverðu. EGILL AÐALSTEINSSON

Horfur eru á að nýja brúin yfir Þorskafjörð verði opnuð umferð meira en hálfu ári á undan áætlun. Í gær var byrjað að leggja bundið slitlag á vegina sem tengja brúna við vegakerfið.

<>

Í fréttum Stöðvar 2 var sent beint út frá Þorskafirði en það var vorið 2021 sem starfsmenn Suðurverks hófu þverun fjarðarins. Brúin sjálf er 260 metra löng en vegtengingar sem fylgja brúnni eru samtals 2,7 kílómetrar.

Verkið hefur gengið framar vonum og er á undan áætlun og í dag hóf klæðningarflokkur Borgarverks að leggja bundið slitlag að brúnni. Byrjað var á kaflanum að austanverðu.

Horft yfir nýju Þorskafjarðarbrúna. Vestfjarðavegur styttist um níu kílómetra með brúnni.
EGILL AÐALSTEINSSON

„Þetta hefur gengið mjög vel. Brúarsmíðin gekk mjög vel. Okkur tókst að steypa seinni hlutann í brúargólfinu í byrjun nóvember í fyrra, sem réði mestu um það að við erum komin svona langt,“ segir Einar Valur Valgarðsson, verkstjóri Suðurverks.

„Góðir karlar sem við erum með hérna og allir samþykkir því að byggja hér fallegt og mikið mannvirki á sem skemmstum tíma.“

Einar Valur býst við að í næstu viku verði lokið við að leggja bundið slitlag á tenginguna að vestanverðu.

Klæðningarflokkur Borgarverks að störfum í Þorskafirði í gær.
EGILL AÐALSTEINSSON

Áætlanir gerðu ráð fyrir að brúin yrði opnuð umferð þann 1. júlí á næsta ári. Við blasir að verktakinn verði búinn löngu fyrr.

„Já, við verðum búnir með þetta fyrr,“ svarar Einar Valur en vill þó ekki nefna nákvæma tímasetningu.

„Það er svo sem ýmislegt eftir. Vegrið og skilti og ýmiss frágangur. En þetta verður opnað fyrir jól. Við skulum segja það,“ segir verkstjóri Suðurverks en með opnun brúarinnar styttist Vestfjarðavegur um níu kílómetra.

Heimild: Visir.is