Vegagerðin býður hér með út gerð sjóvarna í sveitarfélögunum Húnabyggð, Skagaströnd og Skagabyggð, á alls fimm köflum í sveitarfélögunum.
Heildarlengd sjóvarnar er um 900 m.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 9.000 m3
- Vinnsla efnis á lager um 4.500 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2024.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 6. september 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. september 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign