Home Fréttir Í fréttum Kalda­vatns­laust í Foss­vogi: Lögn fór í sundur vegna fram­kvæmda

Kalda­vatns­laust í Foss­vogi: Lögn fór í sundur vegna fram­kvæmda

75
0
Mikið vatn flædi úr lögninni. VÍSIR/VILHELM

Þrýstingur á kaldavatnskerfi Veitna lækkaði mikið þegar lögn fór í sundur við Hafnarfjarðarveg við Landspítalann um klukkan 09:30. Kaldavatnslaust er á stóru svæði í Fossvogi.

<>

Kristinn Andri Þrastarson, sérfræðingur hjá Veitum, segir í samtali við Vísi að búið sé að staðsetja lekann og nú sé unnið að því að komast að lögninni sem fór í sundur. Hann segir ljóst að atvikið tengist vegaframkvæmdum á svæðinu.

Ljósmyndari Vísis var á svæðinu til þess að mynda umferðarteppu vegna framkvæmdanna.
VÍSIR/VILHELM

Hann segir að kalda vatnið sé farið af stóru svæði vegna þrýstingsleysi. Þegar unnt verður að skrúfa fyrir lögnina muni verða alveg kaldavatnslaust á afmörkuðu svæði en þrýstingur hækki annars staðar.

Þá segir Kristinn Andri að erfitt sé að segja til um það að svo stöddu hversu mikill vatnslekinn er en að hann sé talsverður. „Þetta er samt ekki Hvassaleitisleki eða Háskólaleki.“

Þessi mynd er tekin um það bil tveimur mínútum á eftir þeirri hér að ofan.
VÍSIR/VILHELM

Vara við slysahættu

Í tilkynningu á vef Veitna er varað við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum.

„Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið. Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus,“ segir í tilkynningu.

Þá biðjast Veitur velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Heimild: Visir.is