Hafnir Múlaþings óska eftir tilboðum í að byggja harðviðarbryggju við höfnin á Borgarfirði eystra.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
· Jarðvinna: gröftur fyrir landvegg, fylling og grjótvörn,
· Steypa 25 m landvegg
· Smíði og uppsetning á 3 grjótkistum úr harðviði
· Reka niður 4 bryggjustaura úr harðviði
· Byggja um 156 m² bryggju úr harðviði
· Uppsetning á 15 stk.DD250 þybbum á bryggju
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2024.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 14. ágúst 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. ágúst 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign