Home Fréttir Í fréttum Fyrsta skóflustungan að sérhönnuðu húsi fyrir fatlað fólk í Brekknaási

Fyrsta skóflustungan að sérhönnuðu húsi fyrir fatlað fólk í Brekknaási

72
0
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjfóri Félagsbústaða sýnir Birni Eggerti Gústafssyni, verðandi íbúa mynd af nýja húsinu.

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og væntanlegir íbúar Sólveig Ragnarsdóttir, Aníta Sól Sveinsdóttir, Garðar Reynisson og Björn Eggert Gústafsson tóku í vikunni fyrstu skóflustungu að byggingu sex íbúða húss við Brekknaás 6.

<>

Bygging hússins er liður í uppbyggingaráætlun Reykjavíkurborgar fyrir fatlað fólk. Húsið og umhverfi þess er hannað með tilliti til þarfa væntanlegra íbúa hússins og er ætlað að auka lífsgæði þeirra til muna.

„Þessi hópur fólks hefur sértækar þarfir og þarf stuðning til daglegra athafna. Við hönnun íbúðakjarnans var ítarleg þarfagreining unnin í samstarfi við vinnuhóp fagaðila, með aðkomu aðstandenda. Þarfagreiningin lá til grundvallar ákvörðunum hvað varðar efnisval, hljóðvist, stýringu dagsbirtu, læsileika o.fl. og við hönnunina voru þróaðar ýmsar sértækar lausnir,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.

Fyrsta skóflustungan tekin af byggingu fyrir fatlað fólk við Brekknaás. Þau sem tóku fyrstu skóflustunguna eru Sólveig Ragnarsdóttir, Aníta Sól Sveinsdóttir, Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, Daguyr B. Eggertsson, borgarstjóri, Garðar Reynisson og Björn Eggert Gústafsson.

„Áherslur innan fötlunarfræðinnar eru í stöðugri þróun og í hönnun íbúðarkjarnans og lóðarinnar er leitast við að mæta þessari þróun. Húsið verður 640 m2 á einni hæð og auk íbúða verður góð aðstaða fyrir starfsfólk. Áætluð byggingarlok eru í nóvember 2024.“

Teiknistofan Stika og Birta Fróðadóttir arkitekt hönnuðu húsið. Lóðahönnun er í umsjón Landmótunar. Hnit verkfræðistofa sá um hönnun burðarþols, lagna og raflagna. E. Sigurðsson ehf. sér um byggingu hússins. VSB framkvæmdir ehf. annast byggingastjórn og byggingaeftirlit.

Heimild: Visir.is