Home Fréttir Í fréttum Þetta þarf Reykjavíkurborg að borga til að ganga frá lóðinni við Landsbankahöllina

Þetta þarf Reykjavíkurborg að borga til að ganga frá lóðinni við Landsbankahöllina

187
0

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni samkomulag um framkvæmdir vegna frágangs á lóð Austurbakka 2, en um er að ræða lóðina þar sem nýjar höfuðstöðvar Landsbankans hafa verið reistar,

<>

Með samkomulaginu fylgdi umsögn frá fjármála- og áhættustýringarsviðs þar sem fram kom að um alllangt skeið hafi samningaviðræður staðið yfir milli byggingarréttahafa og borgarinnar um lokafrágang á lóðinni og næsta nágrennis hennar.

Tókst að lokum að komast að samkomulagi um fyrirkomulag þessara framkvæmda sem og kostnaðarskiptingu framkvæmdanna og hönnunarkostnað og umsjón framkvæmdanna.

Segir í umsögninni að um sé að ræða lóð sem sé sameiginleg fyrir 8 hús. Borgin kosti til gerð sleppisvæðis við Kalkofnsveg, kostnað við flutning einnar brúar yfir sýki við götuna, sem þarf að flytja vegna deiliskipulagsbreytingar sem borgin beitti sér fyrir árið 2014 á gatnamótum Geirsgötu og Kalkofnsvegar sem leiddi til stækkunar til austurs á húsi Landsbankans.

Einnig skal borgin greiða fyrir lagningu gönguleiðar innan lóðarhluta Hörpu frá brúnni og að Reykjastræti og borgin greiði svo líka kostnað við annað svæði innan lóðarhluta Hörpu, þar sem einungis var búið að ganga frá til bráðabirgða og endurgerð gangstéttar meðferð Kalkofnsvegi sem gerð var til bráðabirgða á sínum tíma.

Samkvæmt frumkostnaðarmati mun borgin greiða um 280 milljónir á grundvelli þessa samkomulags.

Í samkomulaginu kemur fram að aðlar samningsins, sem eru Reykjavíkurborg, Landsbankinn, Reykjavík Development, Austurhöfn, Cambridge Plaza Hotel Company og Húsfélagið Austurbakka, séu sammála um að frágangur yfirborðs, tjarna og brúa skuli vera í samræmi við tillögu frá Landslagi.

Þar kemur einnig fram að borgin eigi að kosta endurgerð regnvatnslagna ef breytt hæðarlega vegna færslu brúar og gerðar sleppistæða kalli á slíkt. Hönnunarkostnaður og umsjón framkvæmda skiptist milli aðila samkomulagsins í hlutfalli við framkvæmdakostnað hvers aðila.

Landsbankinn kosti til allar framkvæmdir innan afmarkaðs byggingarreits bankans, en bankanum er jafnframt falið að annast allan undirbúning, hönnun, framkvæmdir, fullnaðarfrágang vegna framkvæmdanna og skal bankinn ráða verkfræðistofu til verkeftirlits.

Landsbankinn og umsjónarmaður munu sjá um að deila kostnaði á aðila samkvæmt samkomulaginu. Ef til þess kemur að Veitur þurfi að koma að verkefninu mun Landsbankinn sjá um þau samskipti og skipta reikningum vegna þess. Um framkvæmdir utan lóðarmarka ber að hafa samráð við Reykjavíkurborg.

Áætlað er að verklok séu í október á þessu ári.

Samkomulagið má lesa hér

Heimild: Dv.is