Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingu akbrauta með málningu og tilbúnar stakar merkingar árin 2016-2018. Um er að ræða málun á Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði Vegagerðarinnar.
Helstu magntölur, miðað við þrjú ár, eru:
Flutningur vinnuflokks | 1.500 | km |
Málaðar miðlínur | 4.110.000 | m |
Málaðar kantlínur | 1.440.000 | m |
Biðskylduþríhyrningar | 1.200 | stk. |
Þrengingarmerki við einbreiðar brýr | 420 | m2. |
Tilbúnar áletranir | 300 | m2 |
Verki skal að fullu lokið 1. september 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 29. febrúar 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. mars 2016 og verða þau opnuð kl. 14:15 þann dag.