Home Fréttir Í fréttum Vefsíða sýnir vegaframkvæmdir í rauntíma

Vefsíða sýnir vegaframkvæmdir í rauntíma

114
0
Áætlaður kostnaður vegna malbikunarframkvæmdir í borginni í sumar eru 1.540 milljónir króna. Ljósmynd: Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg hefur bætt við valkost á heimasíðu sinni þar sem hægt er að sjá núverandi vegaframkvæmdir.

<>

Reykjavíkurborg gefur nú netverjum kost á því að skoða malbikunarframkvæmdir í borginni á vef Reykjavíkurborgar í rauntíma. Framkvæmdirnar eru flokkaðar í þrjá flokka, framundan, í gangi og lokið.

Í tilkynningu segir að hægt sé að skoða framkvæmdirnar á korti og fá síðan nánari upplýsingar með því að smella á ákveðinn stað. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa mynd af því sem er í gangi í borginni hverju sinni.

© Skjáskot (Skjáskot)

Á kortinu er einnig hægt að finna upplýsingar um afnotaleyfi og framkvæmdir í borginni og er sérstök upplýsingasíða fyrir hverja framkvæmd. Í tilkynningu segir jafnframt að enn sé verið að bæta við upplýsingasíðum um framkvæmdir.

Í mars greindi Reykjavíkurborg frá því að malbikað yrði fyrir 1.540 milljónir króna í borginni í sumar. Gert er ráð fyrir að verkefnum ljúki í september á þessu ári. Borgin gerir einnig ráð fyrir að viðhaldsþörf gatna með endurnýjun yfirlaga verði um 1.350 milljónir króna næstu 5-10 árin.

Heimild: Vb.is