Vegagerðin býður hér með út samsetningu og uppsetningu færanlegrar göngu- og hjólabrúaryfir Reykjanesbraut (Sæbraut) milli Snekkjuvogs og Tranavogs ásamt lyftum og að verkhanna og byggja tröppur og skjólbyggingu á tröppur og brú.
Verkinu tilheyra ofanvatnslagnir, stíglýsing og yfirborðsfrágangur við brúarenda.
Helstu magntölur eru:
Göngu- og hjólabrú, pallar, tröppur og skjólbygging:
– Mót undirstöðu 1.450 m2
– Steypustyrktarjárn 74. 000 kg
– Steypa 530 m3
– Undirstaða fyrir geisla árekstrarhliðs 4 stk.
– Stálvirki, stöplar, smíði og uppsetning 8 tonn
– Stálvirki, brú, uppsetning 30 tonn
Vega- og stígagerð
– Gröftur fyrir leiðslum og jarðstrengjum 320 m
– Slitlagsmalbik 275 m2
– Styrktarlag 60 m2
– Staðsteyptur kantsteinn 100 m
– Bitavegrið 90 m
– Færanlegar skiltaeyjur 4 stk.
– Steinavegrið, forsteypt 40 m
– Eyjur með túnþökum 45 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2024
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 11. júlí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. ágúst 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign