Verkið fellst í að setja upp loftræstikerfi í D-álmu Myllubakkaskóla, Sólvallagötu 6a, Reykjanesbæ sem verkkaupi er að hefja framkvæmdir við.
Verkliðurinn skal framkvæma samkvæmt meðfylgjandi útboðsgögnum og öðrum þeim gögnum sem þar er vísað til. Útboðsgögn verða tilbúin til afhendingar þriðjudaginn 4 júlí. Áhugsamir bjóðendur geta fengið þau afhent með því að óska eftir þeim með tölvupósti á innkaupastjori@reykjanesbaer.is
Vinsamlega takið fram í tölvupóstinum nafn og kennitölu fyrirtækis og þess einstaklings sem óskar eftir útboðsgögnum ásamt tölvupósti og farsímanúmeri.
Yfirlit yfir verkið
- Verkefnið auglýst á heimasíðu Reykjanesbæjar http://reykjanesbaer.is frá og með 4. júlí 2023
- Fyrirspurnatíma lýkur 11. júlí.2023 kl. 12:00
- Svarfrestur rennur út 12. júlí.2023 kl. 12:00
- Skilafrestur tilboða 17. júlí.2023 kl. 12:00
- Opnun tilboða 17. júlí kl 12:02
- Upphaf verktíma Áætlað 27.júlí 2023
- Lok verktíma Áætlað verklok 1.nóvember 2023
- Verðlagsgrundvöllur Verkið verðbætist ekki.
- Frávikstilboð Eru ekki heimiluð