Home Fréttir Í fréttum Samfylkingin telur samgönguáætlun ekki full fjármagnaða

Samfylkingin telur samgönguáætlun ekki full fjármagnaða

61
0
Öll gjaldtaka á umferðina er í endurskoðun vegna orkuskiptanna. Í jarðgangaáætlun er reiknað með að gjaldtaka verði tekin upp í öllum jaðgöngum. VÍSIR/VILHELM

Fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis segir ný framlagða samgönguáætlun ekki full fjármagnaða og hefur áhyggjur af efndum um framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þá væri um 80 milljarða uppsöfnuð viðhaldsskuld á þjóðvegum landsins sem skynsamlegt væri að ráðast í sem fyrst.

<>

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra kynnti samgönguáætlun til fimmtán ára og jarðgangaáætlun til 30 ára í gær, þar sem áætlað er að 909 milljarðar fari í framkvæmdir í samgöngumálum fram til ársins 2038. Þórunn Sveinbjarnardóttir fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgöngunefnd segir verðug verkefni í áætluninni.

„En þau eru til mjög langs tíma og fjármögnun er alsendis óráðin. Sérstaklega fyrstu fjögur til fimm árin. Þannig að eitt er að gera áætlun og annað er að fjármagna hana,“ segir Þórunn.

Þá hafi hún áhyggjur af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og borgarlínuframkvæmdum, meðal annars í samhengi við loftslagsmálin. Í fljótu bragði væri lítil áhersla á þær framkvæmdir sem þyrfti að skoða betur.

Innviðaráðherra hefur sagt að uppfæra þyrfti samgöngusáttmálann vegna verðlags og breyttra áherslna í sumum verkefnanna. Þórunn tekur undir að uppfæra þurfi flest vegna verðlagsbreytinga.

Þórunn Sveinbjarnardóttir fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgöngunefnd.

„En það er auðvitað þannig að þorri okkar býr höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorni landsins. Vegaframkvæmdir og samgönguframkvæmdir þar eru alveg jafn mikilvægar og samgönguframkvæmdir annar staðar. Mér þykir áherslan á betri samgöngur á höfuðborgarsvæðinu ekki nógu skýr,“ segir Þórunn.

Þá væri uppsöfnuð 80 milljarða viðhaldsskuld í vegakerfinu sem væri best að ráðast í sem fyrst. Hins vegar virtist ekkert stórt eiga að gerast í þeim efnum á yfirstandandi kjörtímabili.

Í jarðgangaáætlun er tíu göngum forgangsraðað og fjögur önnur sett í nánari skoðun. Áætlað er að þau fari mörg eða öll í samvinnuverkefni ríkis og einkaaðila og tekin verði upp gjaldtaka í öllum göngum samhliða endurskoðun gjalda á umferðina almennt sem nú stendur yfir.

Þórunn segir Samfylkinguna almennt ekki á móti veggjöldum þar sem þau eigi við. Þessi mál verði að skoða heilstætt.

„Við verðum að vita hvar við ætlum að afla vegagjalda og hvers vegna. Þá þarf það að ganga jafnt yfir alls staðar. Hvað varðar jarðgangaáformin þá eru þau mikil og mörg en það hefur eiginlega ekkert gerst á þessu kjörtímabili í þeim málum. Ég á eftir að sjá að þetta gangi allt eftir miðað við kostnaðinn og þessar miklu áætlanir,“segir Þórunn.

Samkvæmt samgönguáætlun á meðal annars að klára stækkun flugstöðvarinnar á Akureyrarflugvelli.
VÍSIR/VILHELM

Í samgönguáætluninni er gert ráð fyrir átaki til að ljúka stækkun flugstöðvar á Akureyrarflugvelli, uppbyggingu flughlaðs og lagningu akbrautar á Egilsstaðaflugvelli og byggingu nýrrar flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli. Þetta verði fjármagnað með varaflugvallagjaldi sem samþykkt var á vorþingi.

„Það er greinilega mikil áhersla lögð á þessa flugstöð við Reykjavíkurflugvöll. En auðvitað er varaflugvallagjaldið upptaka á gamalli skattlagningu. Það voru engar deilur um það í þinginu,” segir Þórunn. Varaflugvellir væru hins vegar skilgreindir af flugrekendum sem veldu þá,  hvort sem þeir væru í Kanada eða Skotlandi.

„En ég held að þetta snúist miklu frekar um að við höfum innanlandsflugvelli sem geta sinnt hlurverki sínu,” segir Þórunn Sveinbjarnardóttir sem reiknar með miklum umræðum um samgöngu- og jarðgangaáætlanir á haustþingi.

Heimild: Visir.is