Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Íþróttasvæðið við Ásgarð, Samsungvöllurinn – Endurnýjun Vallarlýsingar.
Útboðsverkið felst í endurnýjun á lýsingu aðal knattspyrnugrasvallar Stjörnunnar. Núverandi ljósamöstur verða nýtt áfram.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. október 2023.
Helstu verkþættir eru eftirfarandi:
- · Hanna lýsingu fyrir verkið.
- · Taka niður núverandi lampa.
- · Setja upp nýja LED lampa, með viðeigandi búnaði og fullnaðarfrágangi.
Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvefnum https://vso.ajoursystem.net/ frá og með föstudeginum 9. júní 2023 kl.13:00.
Skilafrestur tilboða er til 11. júlí 2023 kl. 14:00.