Home Fréttir Í fréttum 29.06.2023 Fífuborg. Endurnýjun og uppbygging

29.06.2023 Fífuborg. Endurnýjun og uppbygging

148
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Fífuborg. Endurnýjun og uppbygging, útboð nr. 15851

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í endurnýjun á hluta byggingarinnar og uppbyggingu nýrrar 20 m2 viðbyggingar við núverandi leikskóla sem notuð verður sem stækkun á fataklefa og anddyri. Leikskólinn er á einni hæð en skiptist upp í tvær byggingar.

Helstu verkþættir eru:

  • Innanhúss breytingar
  • Lagning nýrrar loftræsingar
  • Lagning snjóbræðslu
  • Þak- og gluggaskipti.

Vakin er sérstök athygli á því að verkkaupi hyggst fá umhverfisvottun samkvæmt Svaninum á bygginguna en slíkt vottunarferli tekur til margra þátta verktaka á byggingarstað.

Verklok eru 1. febrúar 2024

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann13. júní 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 29. júní 2023.