Home Fréttir Í fréttum 30.05.2023 Gatnagerð í Stykkishólmi – Víkurhverfi

30.05.2023 Gatnagerð í Stykkishólmi – Víkurhverfi

158
0

Sveitafélagið Stykkishólmur, Veitur ohf., Rarik ohf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í verkið:  Gatnagerð í Stykkishólmi – 1. áfangi – Víkurhverfi, Gatnagerð og lagnir.

<>

Verkið felur í sér jarðvinnu gatna–og gangstétta fyrir nýtt hverfi ásamt mótun og frágang regnvatnslautar. Verktaki skal einnig annast alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja á svæðinu.

Helstu magntölur eru:

Gröftur fyrir götum………………….                     11.400 m3
Fylling/styrktarlag/jöfnunarlag,aðflutt efni..           7.700 m3
Fráveitulagnir…………………………                       1.200 m
Vatnsveitulagnir……………………..                          420 m

Hitaveitulagnir DN20-DN100….                           1.150 m
Ljósastaurar…………………………..                        13 stk
Fjarskiptalagnir………………………….                     850m2

Útboðsgögn verða afhent rafrænt með tölvupósti. Senda skal ósk um gögn á tölvupóstfangið utbod@verkis.is með nafni fyrirtækis, heimilisfangi og síma frá og með mánudeginum 15. maí, 2023.

Tilboð skulu hafa borist rafrænt á utbod@verkis.is, í síðasta lagi þriðjudaginn 30. maí 2023, kl. 10.00, sjá nánar í kafla 0.4.3 í útboðs- og verklýsingu.