Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Ísafjarðarhöfn – Sundabakki, þekja og lagnir

Opnun útboðs: Ísafjarðarhöfn – Sundabakki, þekja og lagnir

236
0

Opnun tilboða 2. maí 2023. Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar óskaði eftir tilboðum í framkvæmdir við Sundabakka í Ísafjarðarhöfn.

<>

Helstu verkþættir eru:

  • Steypa upp 2 stk. rafbúnaðarhús og 4 stk. stöpla undir ljósamöstur, 4 stk tengibrunna
    fyrir tengla og vatnshana og 2 stk tengibrunna fyrir skipatengingar
  • Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn
  • Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum
  • Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna síðan undir steypu.
  • Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 6.300 m²

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2024.