Home Fréttir Í fréttum Velta í byggingar­starf­semi eykst um 39%

Velta í byggingar­starf­semi eykst um 39%

119
0
13% fleiri einstaklingar í byggingarstarfsemi fengu laun í ár en á sama tíma og í fyrra. Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Samkvæmt virðisaukaskattskýrslum hefur velta aukist í flestum atvinnugreinum undanfarið ár. Hagstofan greinir frá þessu og bætir við að í sumum atvinnugreinum hafi aukningin verið minni en hækkun verðlags.

<>

Vísitala neysluverðs hækkaði um 10% frá janúar-febrúar 2022 til sömu mánaða 2023.

Velta í framleiðslu málma minnkaði þó á milli ára en í þeirri grein hafði velta aukist mikið á árinu þar á undan. Velta ferðaþjónustunnar var aftur á móti mun hærri í byrjun árs en í fyrra en sú grein hefur verið að rétta úr kútnum eftir kórónuveirufaraldurinn.

Aukning var í byggingarstarfsemi um 39% sem skýrist að einhverju leyti með auknum umsvifum. Til að mynda fengu 13% fleiri einstaklingar í þeirri atvinnugrein laun í janúar-febrúar 2023 en á sama tímabili árið 2022

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Heimild: Vb.is