Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samið við GG verk um risastækkun Fjarðar í Hafnarfirði

Samið við GG verk um risastækkun Fjarðar í Hafnarfirði

333
0
Helgi Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fjarðar og Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri 220 Fjörður við undirritunina. Mynd: Fjarðarfréttir / Guðni Gíslason

Samningur var undirritaður af forsvarsmönnum 220 Fjarðar, sem er eigandi verkefnisins, og GG Verks um viðbyggingu Fjarðar í átt að Strandgötu 26-30, þar sem Fjörður og Strandgata tengjast loksins saman.

<>

Áætlað er að verkefninu verði lokið á árinu 2025 og að sögn verkkaupa verður þetta mikil lyftistöng fyrir miðbæ Hafnarfjarðar þar sem verslun og þjónusta verður stóraukin.

Fyrsti áfangi verkefnisins mun kosta um 3.000 milljónir króna en heildar verkefnið á viðbyggingu ásamt breytingum á núverandi byggingum mun kosta um 6.000 milljónir króna.

Nöfn á mynd: Sigurður Guðmundsson hjá Strendingi og byggingarstjóri verkefnisins, Sveinn Björnsson frá GG verk, Gísli Haraldsson framkvæmdastjóri, Helgi Gunnarsson framkvæmdastjóri og einn eiganda GG verks, Guðmundur Bjarni framkvæmdastjóri 220 Fjarðar, Benedikt Steingrímsson stjórnarmaður 220 Fjarðar og Rúnar Ólafsson GG verk.
Mynd: Fjarðarfréttir / Guðni Gíslason

„Viðbyggingin er um 9.000 m² sem samanstendur af verslunarrýmum, þekkingarsetri/nútímalegu bókasafni hótelíbúðum og 31 lúxusíbúðum, ásamt bílakjallara. Við þessa stækkun verður kjarninn þá um 18.000 m²,” segir Guðmundur Bjarni Harðarson framkvæmdastjóri 220 Fjarðar.

Ásýnd að nýbyggingunni við Strandgötu.

„Við hjá GG verk erum mjög spennt að hefja framkvæmdir á þessari glæsilegu viðbyggingu við Fjörð. Við teljum þessa byggingu eiga eftir að efla og styrkja miðbæinn enn frekar og vera góð viðbót við iðandi mannlíf Strandgötunnar. Við þekkjum líka miðbæinn ágætlega þar sem við erum að ljúka framkvæmdum á Dvergsreitnum í júní og þetta verkefni verður skemmtilegt framhald af því. Við hlökkum til að byrja!,“ segir Helgi Gunnarsson, framkvæmdastjóri GG verks ehf.

Heimild: Fjardarfrettir.is