Home Fréttir Í fréttum Bandaríkjamenn vilja setja þrjá milljarða í viðhald á Keflavíkurflugvelli

Bandaríkjamenn vilja setja þrjá milljarða í viðhald á Keflavíkurflugvelli

144
0

Bandaríkjaher hefur óskað eftir fjárveitingu frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna til að gera upp flugskýli á Keflavíkurflugvelli fyrir rúma þrjá milljarða króna. Utanríkisráðherra segir þetta rúmast innan varnarsamningsins og engar viðræður hafi farið fram um fasta viðveru Bandaríkjahers hér á landi.

<>

Varnarmálaráðuneytið bandaríska sækir um 21,4 milljónir dollara á fjárlögum Bandaríkjanna á næsta ári, eða rétt rúma þrjá milljarða króna, til endurbóta og uppfærslu á flugskýli á Keflavíkurflugvelli þannig að þar verði hægt að þjóna nýjustu gerð ratsjárflugvéla bandaríska sjóhersins.

Flugvélarnar kallast P-8A og eru notaðar við kafbátaleit. Eldri gerð þessara flugvéla hefur oft komið hingað til lands til eftirlitsflugs á Norður-Atlantshafi með kafabátaferðum Rússa, en ferðir þeirra hafa færst í aukana að undanförnu.

Breyta þarf hurð flugskýlisins, uppfæra ýmsan búnað þar, styrkja gólf og dytta að flugplani við skýlið. Ýjað hefur verið að því í fréttum að þessi ósk um fjárveitungu sé til marks um að Bandaríkjamenn hyggi á aukna og jafnvel viðvarandi viðveru hluta herafla síns í Keflavík.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir þetta af og frá.

„Við erum aldrei að tala um það að stöðin í Keflavík verði opnuð aftur í einhverri líkingu við það sem var hér fyrir tíu árum. Það er ekkert í umræðunni. Hins vegar er þetta allt í samræmi við samninga okkar við Bandaríkjamenn um að þeir geti haft hér viðveru þegar verið er í kafbátaleit eða einhverju slíku. En að sjálfsögðu þarf þá búnaðurinn á flugvellinum að vera í þannig ásigkomulagi að geta sinnt þessum nýrri tækjum og tólum,“ segir Gunnar Bragi.

Heimild: Visir.is