Home Fréttir Í fréttum 19.04.2023 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2023 – Útboð 1 – Vestan Reykjanesbrautar og...

19.04.2023 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2023 – Útboð 1 – Vestan Reykjanesbrautar og skilavegir

160
0
Mynd: mbl.is/Eggert Jóhannesson

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2023 – Útboð 1 – Vestan Reykjanesbrautar og skilavegir, útboð nr. 15800

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í malbikun gatna Reykjavíkur vestan Reykjanesbrautar auk malbikun stofnbrauta austan Reykjaesbrautar og vinnu tengdri þeirri malbikun. Um er að ræða beinar yfirlagnir á eldri slitlög gatna og yfirlagnir á áður fræstar götur.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 31. mars 2023.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 19. apríl 2023.