Home Fréttir Í fréttum 28.03.2023 Göngu- og hjólastígur frá Drottningarbraut að Leirubrú og vigtarplan

28.03.2023 Göngu- og hjólastígur frá Drottningarbraut að Leirubrú og vigtarplan

151
0

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar, fyrir hönd Vegagerðarinnar og Norðurorku, óskar eftir tilboðum í gerð fullbúins aðgreinds göngu- og hjólastígs frá Drottingarbraut að Leirubrú og gerð fullbúins vigtarplans með fastri vog við Leiruveg.

<>

Verkið nær til tveggja ára, fyrri hluti felst í greftri fyrir stíg og lögnum, fyllingu í stígsstæði og kringum lagnir, gerð sjóvarnar utan á stíg og lögn aðveituæðar fyrir kalt vatn. Verkið nær einnig til uppbyggingar nýs vigtarplans með fastri vog norðan við núverandi vigtarplan.
Verklok fyrri áfanga er 30. október 2023

Í síðari hluta verksins felst lagning jarðstrengja og polla meðfram stíg, ljósastaura meðfram vigtarplani og hluta Leiruvegar. Þá er einnig lokið við undirbyggingu vigtarplans, gerð undirstaða fyrir vog og gengið frá henni. Að síðustu er malbikun og yfirborðsfrágangur göngu- og hjólastígs og vigtarplans.
Verklok seinni áfanga er 15. ágúst 2024

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 8. mars 2023.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!

Helstu magntölur verksins eru:

Lengd göngu- og hjólastígs (2 x 2,5m): um 1.100 m

Uppgröftur alls: um 12.700 m³

Burðarlagsfylling alls: um 7.100 m³

Fráveitulagnir: um 1.700 m

Stofnlögn vatnsveitu: um 1.200 m

Sjóvörn – tveir flokkar: alls um 6.600 m³

Ljósastaurar og pollar: um 100 stk.

Tengiskápar: um 15 stk.

Jarðstrengir alls: um 6.200 m

Malbikun stígs og vigtarplans: um 6.600 m²

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þriðjudaginn 28. mars 2023 kl. 13:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.