Steypubíll valt á Völlunum í Hafnarfirði fyrir um tuttugu mínútum. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu urðu minniháttar meiðsl á ökumanni en olía lekur frá bílnum.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvort steypa hafi verið í bílnum þegar slysið átti sér stað. Liðsmenn slökkviliðsins eru komnir á staðinn.
Heimild: Mbl.is