Home Fréttir Í fréttum Segir veginn um Teigsskóg verða hluta af landslaginu

Segir veginn um Teigsskóg verða hluta af landslaginu

378
0
Einar Hafliðason er bóndi í Fremri-Gufudal og gröfumaður hjá Borgarverki. STEINGRÍMUR DÚI MÁSSON

Vegagerð um Teigsskóg stendur núna sem hæst og er aðeins hálft ár í að hinn umdeildi vegur verði opnaður fyrir umferð. Bóndi í sveitinni, sem jafnframt er gröfumaður hjá verktakanum, segir að þetta verði mjög falleg leið og spáir því að vegurinn verði orðinn hluti af landslaginu eftir nokkur ár.

<>

Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir frá vegagerð um Gufudalssveit. Verktakinn Borgarverk hófst handa í Þorskafirði í lok maímánaðar í fyrra, fyrir níu mánuðum. Núna er búið að moka fyrir vegstæðinu og leggja í það undirlag á níu kílómetra kafla af ellefu á leiðinni milli Þórisstaða og Hallsteinsness.

Nýi vegurinn mun liggja skammt ofan við íbúðarhúsið á eyðijörðinni Gröf. Fjær sést í vinnubúðir Borgarverks. Þorskafjörður og Vaðalfjöll til hægri.
STEINGRÍMUR DÚI MÁSSON

Aðalvinnubúðir Borgarverks eru við eyðibýlið Gröf. Tólf til fimmtán manns hafa unnið þar í vetur, þeirra á meðal bóndinn í Fremri-Gufudal, Einar Hafliðason.

„Það hefur gengið þokkalega. Ég held að það hafi bara verið tveir dagar sem hefur ekki verið hægt að vinna út af veðri. En veturinn bara búinn að vera góður,“ segir Einar.

Þegar við spyrjum um tækjaflotann telur hann upp fjórar gröfur, fimm búkollur, tvær jarðýtur og tvo borvagna.

Búkolla frá Borgarverki á nýja veginum sem verið er að leggja um Teigsskóg. Þorskafjörður til vinstri.
STEINGRÍMUR DÚI MÁSSON

Vestan við jörðina Gröf er hinn eiginlegi Teigsskógur. Þar er núna komið sár í landslagið. En hvað finnst bóndanum um að sjá veginn ruddan þar í gegn? Finnst honum sárt að fara í gegnum Teigsskóg?

„Nei. Þetta er bara hrís.“

-Þannig að þú sérð ekki eftir því að láta veginn fara hér í gegn?

„Eftir fimm-sex ár, þá verður þetta hluti af landslaginu. Það eru það miklar kröfur um að koma gróðurþekju að þetta verður bara mjög fallegt, held ég.“

Horft inn Þorskafjörð í átt til Vaðalfjalla. Fyrir neðan má sjá hvar verið er að leggja nýja veginn.
STEINGRÍMUR DÚI MÁSSON

-Heldurðu að þetta verði falleg leið að aka?

„Já, mjög. Mjög falleg.“

-En verða einhverjir áningarstaðir fyrir fólk?

„Það hlýtur að vera,“ svarar Einar.

Nýi vegurinn til hægri. Neðarlega til vinstri sést gamli vegslóðinn sem áður var búið að ryðja um skóginn og liggur í átt að bústað á jörðinni Teigsskógi.
STEINGRÍMUR DÚI MÁSSON

Verklok eru áætluð um miðjan október í haust en Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks, gerir þó ráð fyrir að bundið slitlag verði lagt á veginn í ágúst og að hægt verði að opna hann í september.

Leiðin um Teigsskóg er aðeins hluti af endurnýjun Vestfjarðavegar um Gufudalssveit en áður var þverun Þorskafjarðar hafin. Stærsti þátturinn framundan er þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar og áformar Vegagerðin fyrir vetrarlok að bjóða út fyllingar í þá firði.

Heimild: Visir.is