Home Fréttir Í fréttum Tilbúinn til að skoða kosti flugvallar í Hvassahrauni

Tilbúinn til að skoða kosti flugvallar í Hvassahrauni

110
0
Mynd: VÍSIR/PJETUR

Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni, vill að borgarstjóri beiti sér fyrir því að aðalskipulagi Reykjavíkur verði breytt þannig að flugvöllurinn í Vatnsmýri fái að vera þar fram yfir árið 2030. Draga þurfi úr þeirri óvissu sem ríkt hafi að undanförnu.

<>

„Það þarf svo bara að vinna að því að skoða hvort það sé annar valkostur, eins og til dæmis Hvassahraun og þá hvort það sé einhver tilbúinn til að byggja flugvöll þar, því ekki er ríkið að fara að byggja flugvöll,“ sagði Halldór í Sprengisandi í dag.

Halldór, og flokkur hans, hefur hingað til talað fyrir því að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri. Hann segist nú tilbúinn til að skoða Hvassahraun sem framtíðarflugvöll betur – en að þó þurfi að setja við það ákveðna fyrirvara.

„Ég er alveg tilbúinn til að ræða það. Mér finnst það ekkert út í hött.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði pólitíkina ekki virðast höndla þetta mál. Um sé að ræða áratugalangar deilur en segist ekki sjá neitt uppbyggilegt koma út úr því rifrildi.

„Þetta er orðið að tákni einhvern veginn um spennu milli landsbyggðar og höfuðborgar sem er bara vont. Þannig að jafnvel þegar það er kominn kostur sem að í raun mætir mjög mörgum, kannski réttmætum áhyggjum sem hafa verið í þessu máli, sem eru til dæmis hagsmunir innanlandsflugs og þar með landsbyggðar, hagsmunir sjúkraflugs og svona. Ef það er hægt að mæta þessum hagsmunum í Hvassahrauni, af hverju má þá ekki skoða það? Segjum að það sé rétt hjá Halldóri að ríkissjóður þurfi ekki að setja krónu í málið heldur væri hægt að byggja annan völl, annað hvort með tekjum af landi ríkisins í Vatnsmýri eða þá að einkaaðilar gerðu það bara, af hverju má þá ekki skoða það,“ sagði hann.

Halldór ítrekaði þá fyrri orð sín: „Ég kalla þá eftir því að þessir einkaaðilar fari að gera eitthvað. En Dagur þarf að sama skapi að lengja tíma flugvallarins í Vatnsmýri út skipulagstímabilið. Mér finnst það mjög mikilvægur þáttur í þessu.“

Heimild: Visir.is