Lausar eru til umsóknar 11 lóðir á nýju deiliskipulagssvæði, á Suðurtanga, hafnar- og iðnaðarsvæði.
Um er að ræða:
5 lóðir fyrir léttan iðnað, Æðartangi 2, 4, 6, 8 og 10.
5 lóðir fyrir hafnsækna starfsemi, Æðartangi 1, 3 og 5 og Hrafnatangi 4 og 6.
1 lóð fyrir spennistöð, Hrafnatangi 2a.
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2016.
Hægt er að glöggva sig á staðsetningu lóðanna á uppdrætti með þeim sem nálgast má hér. Greinargerð má nálgast hér.
Nánari upplýsingar gefur skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, olofva@isafjordur.is
Umhverfis- og eignasvið Ísafjarðarbæjar.