Home Fréttir Í fréttum Selja blokk á 1,9 milljarða

Selja blokk á 1,9 milljarða

430
0
Kári Árnason starfar nú sem yfirmaður knattspyrnumála hjá uppeldisfélaginu Víkingi Reykjavík. Ljósmynd: Eyþór Árnason

Kári Árnason er í hópi seljenda á 40 íbúða fjölbýlishúsi á Selfossi fyrir tæplega 2 milljarða króna.

<>

Félagið Austurhólar ehf. seldi 40 íbúða fjölbýlishús á Selfossi til félagsins Austurhóla 4 ehf. á 1,87 milljarða króna í lok nóvember.

Á bak við seljandann eru þrjú félög, þar á meðal Hvíthöfði ehf., félag í eigu Kára Árnasonar fyrrum landsliðsmanns í knattspyrnu.

Félögin TB Consulting ehf. í eigu Tryggva Björnssonar og Stofnhús ehf. í eigu hjónanna Jónasar Halldórssonar og Önnu Maríu Þorvaldsdóttur eiga einnig hlut í Austurhólum ehf. Stofnhús er framkvæmdaraðili sem sérhæfir sig í byggingu íbúðarhúsnæðis og byggði meðal annars Austurhóla 4. Jónas Halldórsson er framkvæmdastjóri og starfa þeir Kári Árnason og Tryggvi Björnsson hjá fyrirtækinu.

Á bak við kaupandann, Austurhólar 4 ehf., eru þeir Jón Óskar Karlsson og bræðurnir Sigurður Straumfjörð og Guðmundur Kristinn Pálssynir. Þeir bræður eru meðal eigenda endurskoðunarfyrirtækisins &Pálsson.

Þá er Jón Óskar löggiltur fasteignasali hjá Landmark fasteignamiðlun.

Heimild: Vb.is