Home Fréttir Í fréttum Fjölmennt á Útboðsþingi SI

Fjölmennt á Útboðsþingi SI

134
0
Mynd: SI.is

Fjölmennt var í gær á Útboðsþingi SI sem fram fór í Háteig á Grand Hótel Reykjavík þar sem fulltrúar 9 opinberra aðila kynntu fyrirhuguð útboð verklegra framkvæmdir á árinu.

<>

Í nýrri greiningu SI kemur fram að samanlagt eru áætlaðar verklegar framkvæmdir hins opinbera sem fara í útboð á þessu ári samtals 173 milljarðar króna sem er 65 milljörðum króna meira en kynnt var á Útboðsþingi SI á síðasta ári.

Gangi áætlanir eftir er ljóst að opinberar framkvæmdir munu aukast um 60% milli ára og er það breyting frá samanburði milli 2022 og 2021 þegar var 15 milljarða króna samdráttur í fyrirhuguðum útboðum.

Að mati Samtaka iðnaðarins er þessi aukning jákvætt framlag til hagvaxtar bæði á þessu ári og litið til framtíðar enda er mikilvægt að fjárfesting í efnahagslega mikilvægum innviðum sé næg og viðhaldi þeirra sinnt.

Fundarstjóri þingsins var Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Frummælendur í dagskrá voru eftirtaldir:

  • Setning – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
  • Ávarp – Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
  • Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir – Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
  • Vegagerðin – Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
  • Reykjavíkurborg – Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs
  • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu – Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
  • Landsvirkjun – Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
  • Landsnet – Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
  • Veitur – Heimir Hjartarson, sérfræðingur í fjárfestingum hitaveitu
  • Isavia – Páll Svavar Pálsson, forstöðumaður flugvallarþróunar og uppbyggingar
  • NLSH – Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri

Greining

Hér  er hægt að nálgast greiningu SI.

Glærur

Hér er hægt að nálgast glærur fundarins.

Heimild: SI.is