Home Fréttir Í fréttum 27.01.2023 Hrafnagilsskóli síðari áfangi leikskólaviðbyggingar

27.01.2023 Hrafnagilsskóli síðari áfangi leikskólaviðbyggingar

185
0
Viðbygging við Hrafnagilsskóla

Eyjafjarðarsveit óskar eftir tilboðum í síðari áfanga leikskólaviðbyggingar við Hrafnagilsskóla.

<>

Um er að ræða byggingu leikskóla, ofan botnplötu sem var í fyrsta áfanga, bæði reisingu burðarvirkis og lokafrágang.

Helstu magntölur í verkinu eru:

  • CLT einingar í veggi um 950 m2
  • CLT einingar í plötur um 1.000 m2
  • Lett Tak þakeiningar um 200 m2
  • Samlokueiningar á þak um 1000 m2
  • Stál um 5.700 kg
  • Vatnslagnir (H+K) um 700 m
  • Frárennslislagnir um 200 m
  • Snjóbræðslulagnir um 1.900 m
  • Pípur rafkerfa um 2.000 m
  • Lampar um 300 stk
  • Cat strengir um 1.100 m
  • Rofar og tenglar um 300 stk
  • Dósir rafkerfa um 500 stk
  • Gifsveggir um 400 m2
  • Hljóðdeyfiplötur í loft um 600 m2
  • Slétt álklæðning um 600 m2
  • Loftstokkar um 400 m

 

Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. apríl 2024.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með miðvikudeginum 04.janúar 2023.

Beiðni um afhendingu gagna skal send í tölvupósti á netfangið rab@verkis.is

Tilboðin verða opnuð á skrifstofu VERKÍS að Austursíðu 2, 603 Akureyri þann 27. janúar 2023 klukkan 13.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.