Home Fréttir Í fréttum Bæjarráð vill gera viljayfirlýsingu um byggingu 80 herbergja hótels og baðlóns við...

Bæjarráð vill gera viljayfirlýsingu um byggingu 80 herbergja hótels og baðlóns við Jaðarsbakka

171
0
Mynd: Skagafrettir.is

Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að fela bæjarstjóra að vinna að gerð viljayfirlýsingar vegna hugmynda um uppbyggingu íþróttamannvirkja og heilsutengdrar ferðaþjónustu við Jaðarsbakka.

<>

Áður höfðu Velferðar -og mannréttindarráð og skóla – og frístundaráð fjallað um málið og lagt til að skrifað yrði undir viljayfirlýsingu við fulltrúa Ísoldar fasteignafélags, Íþróttabandalags Akraness og Knattspyrnufélags Akraness.

Í erindinu kemur fram að verkþættir samstarfsins myndu ná til ýmissa þátta sem gætu eflt samfélagið á Akranesi.

Þar má nefna stefnumörkunar á ferðaþjónustu fyrir Akranes, til að styrkja uppbyggingu hótels og baðlóns sem gætu náð til almennra tækifæra á Akranesi, heilsutengdrar ferðaþjónustu og samlegðartækifæra með Heilbrigðistofnun Vesturlands á Akranesi.

Mynd: Skagafrettir.is

Hönnun hótels, baðlóns og skipulags á svæðinu til að tryggja að hagsmunir íbúa, íþróttafélaganna og annarra hagsmunaaðila séu sem best tryggðir og tækifæri tengd ferðaþjónustu séu nýtt.

Samhliða yrði unnið að skipulagi og svo uppbyggingu á íþróttamannvirkjum á Jaðarsbökkum.

Ísold fasteignafélag hefur ráðið Basalt arkitekta sem hönnunaraðila verkefnisins.

ÍA og Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA) sendu bréf á bæjarráð þann 30. nóvember s.l. og þar komu fram áhugaverðar tillögur um breytingar á Jaðarsbakkasvæðinu.

ÍA og KFÍA telja að nauðsynlegt sé að fara í verulegar endurbætur á knattspyrnuvellinum við Jaðarsbakka. Öflugur hópur sjálfboðaliða gerði völlinn á miðjum fjórða áratug síðustu aldar – og er ljóst að undirlag vallarins er langt á eftir þeim gæðastöðlum sem notaðir eru í dag við uppbyggingu á slíkum íþróttamannvirkjum.

Mynd: Skagafrettir.is

Íbréfinu eru viðraðar hugmyndir og lausnir til skemmri og lengri tíma – ef ráðist yrði í risavaxnar breytingar á legu Akranesvallar.

Þar er sagt frá þeirri hugmynd að snúa Akranesvelli í 90 gráður og þar með myndi völlurinn liggja samhliða vesturhlið Akraneshallar.

Aðalvöllur myndi vera á 12 þúsund fermetra svæði og með tilfærslunni væri hægt að nýta 1,5 hektara af landsvæði til uppbyggingar og umhverfisbóta. Í bréfinu kemur fram að náttúrugras, hybridgras og gervigras séu allt valkostir sem komi til greina í vali á undirlagi á nýjum grasvelli. Hybrid gras er blanda af náttúrugrasi og gervigrasi – en slík lausn varð fyrir valinu á Kaplakrikavelli hjá FH,

Mynd: Skagafrettir.is

Ljóst er að með breytingum á aðalvelli verður ekki hægt að leika á honum í 1-2 ár. Það leiðir af sér að gera þyrfti gervigrasvöll austan Akraneshallar – með bráðabirgðaaðstöðu fyrir áhorfendur á meðan framkvæmdum stendur. Sá völlur myndi í framhaldinu nýtast sem æfinga – og keppnisvöllur fyrir leiki KFÍA til lengri tíma.

Ekki hafa verið lagðar fram hugmyndir um hvað verður gert við áhorfendastúkuna við Akranesvöll í þessu breytingarferli – eða hvort ný áhorfendastúka verði gerð á vesturhlið Akraneshallar.

Myndirnar hér fyrir neðan eru samsettar af skagafrettir.is og eru aðeins byggðar á þeim gögnum sem koma fram í bréfi ÍA.

Heimild: Skagafrettir.is