Home Fréttir Í fréttum Vilja byggja á Viðjulund 1 á Akureyri

Vilja byggja á Viðjulund 1 á Akureyri

267
0
Í þessum dúr sjá menn fyrir sér fjölbýlsihúsin Mynd Form ehf arkitektastofa Kaupangi

Skipulagsráð Akureyrar tók fyrir á fundi sínum í þessari viku erindi frá Ágústi Hafsteinssyni fyrir hönd Klettabjargar efh þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr, 1 við Viðjulund.

<>

Breytingin er að allar byggingar á lóð Viðjulundar 1 verði rifnar og í stað þeirra yrðu reist tvö stakstæð fjölbýlishús á allt að sex hæðum auk kjallara.

– Fjöldi íbúða yrði allt að 36 og þrjár íbúðir á hverri hæð hvorrar byggingar.

– Að hálfniðurgrafinn bílastæðakjallari yrði byggður með 36 bílastæðum í kjallara og 30 stæðum á þaki.

– Innakstur í bílakjallara yrði frá Skógarlundi að austan og inn á þak frá Furulundi að vestan.

– Lóð Viðjulundar 1 yrði stækkuð til norðvesturs um 91 m² og sameiginleg innkeyrsla Viðjulundar 1, 2A og 2B yrði einungis fyrir Viðjulund 1.

Skipulagsráð frestaði afgreiðslu og fól skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um framhald málsins.

Heimild: Vikubladid.is