Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið:
Grænamörk og Austurmörk, færsla gatnamóta.
Verklok eru 15. maí 2023
Verkið er gerð breytinga á gatnamótum Grænumarkar og Austurmarkar.
Verktaki skal jarðvegsskipta samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag, burðarlag, malbika götur, og stíga ásamt því að steypa kantstein og helluleggja hraðahindrun. Verktaki skal einnig leggja regnvatnslagnir og færa ljósastaura.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 1100 m³
- Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 2400 m³
- Fráveitulagnir 86 m
- Malbik 1370 m²
- Hellulögn 108 m²
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með þriðjudeginum 27. september 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Eggert hjá EFLU á Suðurlandi með tölvupósti, á netfangið bardur.arnason@efla.is, og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang, og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, 810 Hveragerði, fyrir kl. 11:00 þann 11. Október 2022, og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.